Ađalvalmynd

Hćtt farin bless!!

26. febrúar 2008 klukkan 14:44

Nenni ekki ...

04. desember 2007 klukkan 14:13
Jahérnahér! Ég er að hugsa um að láta þessa síðu alveg eiga sig núna í desember allavega :) Nenni ekki að blogga og hef aldrei neitt merkilegt til að segja frá :)

Allavega þá er ég samt með Boracho síðuna ásamt hinum gellunun og svo er það bara myspace ;) www.myspace.com/heidrunsara

Byrja kannski aftur á nýja árinu :)

Hædý

Hún á afmćli í dag !!!

21. nóvember 2007 klukkan 12:42

Ég vil byrja á því að óska henni Þuru minni, sem er besta vinkona mín og sambýlingur til hamingju með 18 ára afmælið :D En það er einmitt í dag, 21.nóvember :)


Það verður mikið fjör hér í Grundargerði í kvöld þar sem hitt afmælisbarnir, sem er hún Eva Þórey ætlar að koma og baka og svo ætla allar stelpurnar að koma og við verðum með eitthvað góðgæti í boði og ætlum að horfa saman á Herra Ísland. Þetta verður bara gaman sko :)

Ég er að fara suður ekki á morgun heldur hinn. Semsagt á föstudaginn :) Er ekkert lítið spennt að fara í borgina og versla eins mikið og ég mögulega get. Helgin er alveg plönuð. Elva mín ætlar að ná í mig á völlinn á föstudaginn og við ætlum að bruna til Sandgerðis, ég fer í litun hjá Svandísi frænku og svo ætlum við að kíkja á Sólveigu og litla prinsinn hennar.
Laugardagurinn verður langur og erfiður þar sem stelpurnar þurfa að þola mig á meðan ég eyði peningum :) Sólveig er búin að bjóða okkur í afmæli hjá Andra Fannari litla og ég ætla að reyna að komast í það, ef ég hef tíma :)
Þarf líka að gefa mér tíma til að hitta Svandísi og Ara :) Svo verður Sandra elskan fyrir sunnan líka, dríf þau öll í keilu ;) Og Rögnu og Elvu með :)

Mér finnst ég ný búin í helgarfríi og það er strax að koma aftur :D Ótrúlega næs að vera hætt að vinna :) Svo stutt á milli fría ;)

Um síðustu helgi fór ég til Vopnafjarðar ásamt Þuru, Gerði, Sillu og Óla. Lögðum af stað seinnipartinn á föstudeginum og komum svo aftur hingað til Akureyrar á sunnudagskvöldið :) Það var bara gaman á Vopnafirði, kom að vísu frekar ógeðslegt veður þarna á laugardaginn en ég hafði það nú bara gott :)

Jæja, ætli ég setji ekki í þvottavél og sinni heimilisverkunum svona í tilefni dags :)

Átta dagar þar til ég flyt austur....

HEIÐRÚN ;*

Mánudagar til mćđu

12. nóvember 2007 klukkan 22:00

Jæja þá er þessi mánudagur alveg að taka enda. Hann er nú búinn að vera skít sæmilegur miðað við mánudag að vera :) Ég var að klára vinna mína síðustu vakt í Hrísalundi núna áðan. Get bara farið að hafa það næs um helgar fram að jólafríi. Fer heim til Egilsstaða 30.nóvember :)

Það eru smá blendnar tilfinningar í gangi hehe. Á eftir að sakna ýmislegs hérna og já þetta er bara búið að vera rosalega gaman. Ég heiti því að koma reglulega í heimsókn og taka gott djamm :)

Helgin var alveg mögnuð með eindæmum. Páll Óskar lék fyrir dansi í Sjallanum á Laugardagskvöldið og að sjálfsögðu mættum við þangað. Byrjuðum að drekka heima hjá Sillu og Óla, fórum svo í V.I.P partý og svo var það bara Sjallinn í öllu sínu veldi og með tilheyrandi djammi. Það má segja að sumir hafi fengið sér full mikið af því góða þetta kvöld en ég vil þakka honum Benjamín mínum fyrir að vera alveg yndislegur  og að hafa passað mig svona vel þar sem ég fékk mér kannski full mikið í tánna :S En ég setti einhverjar myndir hér inn frá kvöldinu, á eftir að setja fleiri en það kemur allt með kalda vatninu ;)

Svo er það bara Vopnafjörður á föstudaginn. Við Þura ætlum að fara og Gerði langar líka að kíkja heim. Held það sé alveg fullt af liði að fara heim í fjörðinn næstu helgi. Þetta verður bara svona róleg og kósý helgi held ég. Tókum allar svo vel á því á laugardaginn :) Gömlu kellurnar ;)

Ég kveð að sinni, ávalt dugleg að hlaða inn myndum :)

Það væri gaman að sjá einhver komment hérna svona til tilbreytingar ;)

HeiðrúnSara
 

Alltaf ađ setja inn myndir ;)

05. nóvember 2007 klukkan 14:12
Jæja elskur! Ég er alltaf að bæta inn myndum og nú var ég að setja inn mynfirnar frá Herra Norðurland sem var síðastliðið föstudagskvöld :) Endilega kíkið á það.

Helgin var rosalega fín þrátt fyrir vinnuhelgi. Jói, Brynjar og Benni hringdu bara á með keppnin var og sögðust vera að koma á Akureyri. Þeir birtust svo hérna einhverntímann upp úr þrjú á föstudagsnóttinni og það var búið um þá hér í Grundargerðinu. Rosalega gaman að sjá smettið á þeim ;)

Ég var að fá að vita það að ég fæ bara 11 einingar metnar hérna í VMA frá ME ..ég á nú að vera búin að ljúka heilu ári í Menntaskóla, hef aldrei fallið svo þetta stenst ekki alveg :S Er ekki sátt með þetta. Ef þetta er ekki einhver misskilningur þá er gaman að segja frá því að ég er að koma aftur í ME :D Ég vil alls ekki missa heilt ár útaf þessu rugli! Er allavega búin að sækja um og býst passlega við því að koma :)

Svo er það bara borg óttans 23.nóvember. Þar ætla ég að versla eins og andskotinn, djamma fram í rauðann dauðann og versla aðeins meira, hitta Svandísi mína, Rögnu, Elvu og Sólveigu :) Og einhverja fleiri auðvitað. En númer eitt, tvö og þrjú, VERSLA :D Pabbi sæti var bara bestur, eins og ALLTAF, og splæsti á mig flugfari suður. Það sem hann gerir ekki fyrir dóttir sína. Alveg yndislegur :) Hann á margt inni hjá mér sá gamli :D

En nú er kominn tími á að reyna að læra pínu áður en ég fer í vinnuna :)

Ég bið bara að heilsa ykkur í bili :)

Heiðrún !!!

Veturkonungur farinn ađ gera vart viđ sig

01. nóvember 2007 klukkan 19:11

Úti er alltaf að snjóa! Já hér norðan heiða er allt orðið hvítt. Meira að segja ég og Þura. Ætlum mjög líklega að nota þennann nóvembermánuð í það að liggja í ljósabekkjum :) Kannsi lærum við eitthvað örlítið, annars er það ekki til neins :)

Það eru bara 29 dagar í jólafrí hjá mér :D Fyrir utan eitt próf sem ég þarf að taka 10.desember. En þar sem ég fer bara í eitt próf þá er ég að hugsa um að fara heim 29.nóvember og fá að taka prófið mitt í ME. Þannig að kellingin verður komin austur 29.nóv :) Það verður gaman að koma heim og fá jólin. Er komin í smá gír, farin að hlakka til jólanna.

Herra norðurland er á morgun. Við stelpurnar ætlum að fara og hvetja strákana ;) Og djamma af okkur assgatið að sjálfsögðu. Ég lofa engu en ég skal reyna að muna eftir myndavélinni ;)


Annars er ekkert annað frétta nema það að hér er skítakuldi og snjór. Maður vill helst bara vera innandyra. Við Þura nennum ekki að elda í kvöld. Endum örugglega á því að panta eitthvað. Það er leti og ennþá meiri leti sem einkennir íbúa Grundargerðist þessa dagana. Þura var samt nagli í gær og fór út að moka tröppurnar. Kvennmaður í krapinu mætti segja :)

En nú ætla ég að hringja í þann gamla (pabba) og biðja hann um að bóka flug suður fyrir mig ;)

Ást og friður ;*

Heiðrún :)

Pottađu hann bara manneskja!

24. október 2007 klukkan 12:15

Þá eru myndirnar frá konukvöldi VMA komnar inn og það mætti segja að þetta hafi verið ansi skemmtilegt og jafnframt skrautlegt líka :) Við vorum saman á borði, ég, Þura, Gerður, Silla og Eva og það vann ein okkar í happdrættinu en það var hún Silla. Hún fékk eitthvað gjafabréf í tan klefa og svona hehe :) Það voru ýmsir vinningar veittir og þá aðalega frá Adam&Evu. Mjög gaman að fylgjast með þessum vinningum ;) En endilega kíkið á myndirnar, þær tala sínu máli! :)

Núna síðustu helgi fengum við gesti. Guðni og Smári komu, þeir voru að ná í nýja bílinn hans Guðna. Svaðalegur kaggi ;) Og Lára var líka hérna hjá okkur. Þegar ég kom heim úr vinnunni var bara verið að matreiða læri og fékk maður þetta dýrindis læri sem Guðni gerði í kvöldmatinn. Hann kom mér á óvart strákurinn :) Síðan var ég bara edrú eins og flest allar aðrar helgar hér á Akureyri :) Fór samt niðrí bæ og kom við á Hlöllabátum í smá stund með Láru áður en við fórum heim. Þar var eitthvað fátt um fólk sem maður þekkti svo ég spjallaði bara við Manna í símann. Lára vildi svo djamma lengur en ég vildi drífa mig heim :) Klassa helgi samt sem áður!!

Það er samt afspyrnu lítið að frétta héðan af eyrinni. Ég var nú búin að ákveða að kíkja austur um helgina en mamma og pabbi ætla að koma á Akureyri og gista hérna yfir helgina þannig að ég fer ekki langt :( Samt gaman að fá þau í heimsókn, að sjálfsögðu.

Það styttist óðum í jólafrí, tíminn líður og líður og það er að verða kominn nóvember. Ekki nema rúmlega mánuður eftir af skólanum. Svo er bara spurning hvað maður gerir eftir áramót. Það er um tvennt að velja og það er VMA áfram eða ME aftur :) ???

Ég viðurkenni það nú að það er freistandi að vera í ME og eiga alltaf pening :)

Ég ætla að skella mér suður núna í nóvember einhverntímann. Taka mig saman í andlitinu og versla eins og ég eigi lífið að leysa. Það er alveg kominn tími á það að ég gefi mér það bessaleifi ;) Og auðvitað geri ég eitthvað meira en að versla hehe, kíki nú á Sólveigu, Aron og litla kút og stelpurnar fyrir sunnan :) Hlakka svo til :D


Ég var að fá út úr miðannarmatinu í skólanum, og þetta gengur svona dindótt eins og maður segjir, ég er með A og B í einhverjum fögum, svo hefur C líka sýnt sig en þá er bara að reyna að bæta úr því :)


Miðvikudagur í dag sem þýður? ..jú! Hreingerningardagur í Grundargerði!! Ætla að undirbúa mig andlega fyrir þessi átök :)


Heiðrún út Ullandi

Nóg ađ gerast...

18. október 2007 klukkan 16:40

Þetta er ekki að verða neitt grín, ég er orðin ansi slök í blogginu sýnist mér. En ég er þó ný búin að henda inn myndum og svona, það er allavega smá lífsmark hérna :)

Í gær fórum ég, Þura og Gerður á ,,Bandið hans Bubba,, í Vélsmiðjunni. Það var rosalega gaman. 12 keppendur kepptu um að komast áfram í þættina þarna sem eiga að vera á stöð 2 og í lokin tók kóngurinn sjálfur nokkur lög. Hann er náttúrulega ekkert annað en góður og gaman að hlusta á hann :)

Svo í kvöld liggur leiðin á konukvöld :D Og ætli myndavélin verði ekki tekin með þangað :) Það verður örugglega ótrúlega gaman!

Það gengur ágætlega í skólanum, hefur gengið betur en ég er góð ;)

Vinna um helgina hjá mér þannig að ég á ekki eftir að gera mikið. Samt aldrei að vita nema maður kíki eitthvað út á lífið.

Sumarbústaðarpartý Vopnfirðinga var frestað, átti að vera þessa helgi. Ég er eiginlega hálf fegin því þetta er vinnuhelgin mín en nú er verið að reyna að finna einhverja helgi í nóvember sem flestir komast :D Þetta verður án efa djamm ársins :) Ég bíð spennt eftir að fá á hreint hvaða helgi þetta verður :D


Allt í gúddí hérna í Grundargerði ...og ég veit ekkert hvað ég á að blogga um, nenni því ekki, get það ekki og kann það ekki. Þar hafið þið það! Ætla samt að vera dugleg að setja inn myndir svo þið getið fylgst með, hvaða slúðurdós hefur ekki gaman að því að lesa blogg annara og skoða myndir? :)


Endilega kommentið :)


HeiðrúnSara

Myndir

15. október 2007 klukkan 00:22

Jæja, ég er að vinna í því að henda þessum myndum hérna inn.

Það var allt í lagi á Óvissuballinu, við Sandra duglegar í því að vera pirrandi og ég er ekki frá því að við höfum verið með örlítinn dólg við mann og annann ;)

Ég fór ekki á Vopnafjörð eins og ég var búin að plana. Það verður að bíða betri tíma :)

Annars hef ég voðalega fátt að segja, er bara dauð þreytt hérna við að koma þessum myndum inn :)

Svo tekur alvaran bara við, bruna til Akureyrar á þriðjudaginn. Það er búið að vera algjört æði að vera heima í þessa daga. Væri alveg til í að vera lengur.


Gaman væri að fá comment eða kvitt í gestabókina elskur ;)

HeiðrúnSara

Jááá fínt! Já sćll! Já fínt já sćll já fínt já sćll já fínt...

08. október 2007 klukkan 21:28
Þá er enn einn mánudagurinn afstaðinn :) Komst í gegnum þennann dag án þess að lenda í miklum hremmingum ;)

Sandra mín kom hingað á Akureyri í gær og við fórum í bíó ásamt mömmu hennar og Önnu Margréti. Ég og Sandra fórum á Halloween og ég mæli eindregið EKKI með henni því hún er hinn argasti viðbjóður.

Svo gistu þær mæðgur hér í mínum húsum. Vöknuðum svo eldferskar klukkan 9 í morgun og fórum og fengum okkur morgunmat í bakaríinu við brúnna áður en ég fór í skólann og Sandra til tannsa. Voðalega gaman að hafa þær, þó svo það hafi ekki verið nema yfir eina nótt.

Ég var að vinna alla helgina og læra þannig að það var ekkert djamm á mér. Gaman að segja ykkur frá því að þá er ég búin að fara svona tvisvar á djammið eftir að ég flutti hingað norður. Það eru miklar framfarir hjá mér þar sem að allt síðasta ár hefur farið í subbulíferni! Gefum mér eitt fott klapp fyrir því. Ég er allavega ánægð með þessar framfarir. Batnandi mönnum ber best að lifa segji ég nú bara :)

Löng helgi framundan í VMA og liggur leiðin austur á fimmtudaginn :D Er orðin rosalega spennt að fara heim. Óvissuball ME og svona á föstudaginn ;) Þá ætla ég nú að taka svolítið almennilega á því með krúttítúttunum mínum þarna heima.

Svo er aldrei að vita nema maður fari á Vopnafjörð á laugardaginn. Það er allavega planið, vona bara að það gangi eftir.

Egilsstaðabúar gerðu það gott þarna síðustu helgi!!! Say no more. Ættu bara að skammast sín fyrir subbulega hegðun :) Þeir taka þetta til sín sem eiga í hlut ;)

Ekki sátt með þetta!

En hlakka til að koma og djamma á Óvissuballi :)


HeiðrúnSara

Auglýsing

Textareitur

Ég heiti Heiđrún Sara og er oft kölluđ Hćdý. Ég kem frá litlum stađ sem heitir Vopnafjörđur en er búsett á Egilsstöđum. Ég er lítil, get veriđ hávćr, get líka veriđ feimin, frek, brjáluđ svolítiđ en samt svo drullu skemmtileg :) Endilega kommentiđ eđa skrifiđ í gestabókina, ekki vera feimin ;)

Myndir 2008